Námskeið haldin af Jóhönnu

Námskeið um ræktun matjurta í heimilisgörðum eru haldin á Dalsá í apríl og maí. Á námskeiðunum er lögð er áhersla á lífræna ræktun og verklega kennslu.

Í fyrirlestrum er rætt um einstakar tegundir, vaxtarrými, sáningu og uppeldi, jarðveginn og áburðarnotkun í lífrænni ræktun, svo að eitthvað sé nefnt.

Í verklega hlutanum læra nemendur að sá og ala upp sínar eigin matjurta­plöntur og að sá og gróðursetja út í beð.

Námskeiðið er í þremur hlutum og tímasetningin miðuð við æskilegan ræktunartíma og þann tíma sem tekur að ala upp plöntur fyrir vorið.